E l d r i F r é t t i r
Í College Station Starri bróðir Rakelar eignaðist son Þorra Starrason þriðjudaginn, 24 ágúst.
Siggi er sérlega duglegur þessa dagana að fara og synda í Bartan Springs. Telur hann að þetta sé með betri sundstöðum sem hægt er að hugsa sér. Þar sé vatnið þægilega kalt í Texas hitanum, sjaldan þurfi maður að snúa við eða að forðast fólk því sundlaugin er svo svakalega stór og náttúrurleg uppsprettan sér fyrir því að vatnið er tiltölulega hreint og án klórs. Hann sver að hafa séð sverðfisk í lauginni. Þar má líka stundum sjá krabba og einstaka eðlutegund sem er í útrýmingar hættu býr í lauginni. Gaman væri ef aðrir kæmu með.
Velkomin til Austin og í samfélag kjammana Brigitta og Kristín. (sjá meðlima síðu). Brigitta sem er fæddur Húnvetningur (eins og Rakel og Jóna Finndís) er flutt til Austin ásamt Steve. Hyggst hún vinna í ár í Austin og fara síðar í UT. Kristín er dóttir Mæju í Dallas þar sem þorrablótið var haldið seinast, en hún er að byrja í UT.
Starri bróðir Rakelar mætti á svæðið og fékk að njóta leiðsagnar vanra manna við skoðun á næturlífi Ástínborgar, en Rakel og Siggi leiddu saklausan sveitardrenginn í allan sannleika um hættur stórborgarinnar. Tekið skal fram að Starri stendur yngri bræðrum sínum lítt að baki er hlaup varðar og mun ótrauður kasta sér út í harðvítuga keppni við Sigurð nokkurn Magnússon í vikulegu hlaupi þeirra Ástínbúa.
Fyrri afrek Starra á hlaupasviðinu má nálgast á netinu.
Sveinn bróðir Rakelar náði þriðja besta tíma Íslendings í 3000 metra hindrun.
Búið er að setja upp nýjann RVIK tölvubúnað. Notendur þurfa að velja ný lykilorð
Sonia og Stefán eignuðust strák miðvikudaginn 31. mars, hann var skírður laugardaginn, 8 maí.
Íslenska hljómsveitin Bellatrix öðru nafni Kolrassa Krókríðandi, spilaði laugardaginn 20 mars á Bob Popular, sjötta stræti Austin.
Celine Dion var í San Antonio sunnudaginn 4 Apríl. Gyða, Birna, Siggi, Rakel, mamma hennar og tveir bræður sem eru í heimsókn fóru.
Birna heldur uppá afmæli föstudag Þorrablót var haldið fyrstu helgina í febrúar í Dallas. Mikið fjör og söngur.
Palli var á Bylgjunni í beinni 21 janúar. Hann ræddi þar um rannsókn sem hann hefur gert á hjúkrunar konum sem hafa allist upp á heimilum þar sem áfengi hefur verið misnotað. Komst hann vel að orði og óskum við honum til hamingju með þetta.
Guðrún Ásgeirsdóttir prestfrú sem kom í heimsókn til Austin er komin með vefsíðu.
Haustið 1997 var farið í útilegu í Enchanted Rock. Ferðasögu ritaði Stefán.
Rakel og Sigga hafa lengið verið að planleggja húsakaup. Eru þau með ákveðið hús í huga sem er að verða tilbúið.
Nýtt um líkamsrækt (opnunartími Barton Springs)
Til að senda tölvupóst til allra kjamma er hægt að senda á netfangið kjammar@rvik.com
Til að senda tölvupóst til allra kjamma í Asutin er hægt að senda á netfangið austinkjammar@rvik.com
Nánari upplýsingar um netföng og símanúmer er að finna á meðlimasíðu kjamma.
Þessa síðu er að finna undir kjamma.vefur.com, kjammar.in-cyberspace.com, kjammar.on-the-world-wide-web.com og á kjammar.rvik.com með eða án www fyrir framan.