K j a m m a  heimsóknir, ferðir, komur og brottfarir

Reykjavík á gamlársdag 1998

Rakel er fór aftur til San Fransisco/Berkeley haustið 2001 til að klára þar internship.  Gyða keyrði með henni því hún þurti að mæta eins og Rakel á apa ráðstefnu.  En það er eitthvað sem bara sálfræðingar eða verðandi sálfræðingar gera.

Birna og Sigfús sem varla þekktust þegar þau komu hérna út giftu sig á Íslandi vorið 2001.  Til hamingju.

Sigga Vala vinkona Rakelar kom til í Californíu í mánaðar námskeiði, vorið 2001.

Jón fór heim í mánuð vorið 2001 og vann. Í haust fékk hann topp einkunir hjá ACC.  Móðir Gyðu kom í heimsókn til Austin í 9 Mars 2001 og var í þrjár vikur.

Dóttir Mæju gifti sig 17 febrúar 2001.

Róbert fór á skíði til Ítalíu og kom aftur 24 febrúar 2001.

Tvær vinkonur Brigittu heimsóttu hana vorið 2001

Systir Jón Birgirs kemur í heimsókn í 10 daga 3 Mars 2001, en Jón Birgir er fluttur til Íslands eftir því sem best er vitað.

Rakel keyrði frá Californíu til Colorado og til baka.  Hún setti bara keðjur undir mözduna og keyrði í gegnum dundrandi snjókomu. Í Colorado hélt hún áfram rannsóknum á viðhorfum starfsmanna nokkurs fyrirtækis til frítíma, vinnu og fjölskyldu til styttri og lengri (atvinnu lífskeiðs) tíma. 

Aldamóta gleði var haldin heima hjá Sigga og Rakel áramótin 2000/2001. Meðal gesta voru Ása og Simmi frá Colorado, Erlingur og Þórhildur frá Dallas, Berglind og Jóhanni frá College Station, ásamt systir Jóhanns og mansins hennar.

Kalkúnsboð og í leiðini annað afmælisboð var haldið heima hjá Sigga 11 nóvember 2000. 

Engin Lognmolla III Party var haldið laugardaginn, 28 Október, 2000.

30 ára afmælisboð var haldið heima hjá Jóni og Gyðu 4 nóvember 2000.

Mæja fór í heimsókn til Íslandi haustið 2000 og sumarið 2001.

Töluvert af íslendingum kom í heimsókn til Austin haustið 2000. Móðir Stebba og foreldrar Sverris komu í 6 vikna heimsókn og móðir Brigittu kom í heimsókn. Nú, svo eru foreldrar Simma í margra mánaða heimsók.

Rakel er komin til Berkeley (CA) með viðkomu í Colorado. Klukkan ellefu að morgni laugardaginn 19 ágúst 2000 renndi hún úr hlaði á mözdu sinni vel byrg af farangri. Hún stoppaði í Colorado til að safna gögnum fyrir doctorsritgerð. Seint að kvöldi mánudagsins 4 september 2000 rendi hún svo í hlaðið í Berkeley. 

Hrafn er mættur í MBA nám í Austin, haustið 2000.

Laugardaginn 12 ágúst 2000 var haldið party heima hjá Sigga og Rakel til að halda upp á útskrift Jónu Finndísar þann sama dag, komu Jóns, Gyðu og Grétu aftur til Austin svo og í tilefni ferðar Rakelar og afmælis.  

Sigfús, Birna, Jóhann, Berglind, Palli og Hófí senda kveðjur frá grjóthólmanum.

Rakel skrapp á ráðstefnu um "Work and Families" til San Francisco í byrjun Mars og fór hún á Þorrablót þar í leiðinni. Þar tróð upp sópran söngkona frá Texas sem söng íslensk lög af mikilli leikni og innlifun. Hún hafði rekist á Íslending á internetinu einhvern tíma og beðið hann um að senda sér íslensk lög, sem hann og gerði, og fékk hún mikið dálæti á íslenskri tónlist.

Jón og Gyða fóru í ársleyfi til Íslands haustið 1999. Þau fluttu allt út úr íbúðini sinni. Flest allt fór í geymslu. Eitthvað pláss er eftir í geymsluni ef einhver þyrfti að nýta sér það að þeim forspurðum, Siggi hefur lykil.

Birna og Sigfús skruppu til Seatle í Ágúst 1999.

Rakel fór einnig í ferðalag í Ágúst 1999, hún fór á American Psychological Association ráðstefnu í Boston.

Sveinn bróðir Rakel er kom til Arkansas í nám og hlaup en er farinn aftur til Íslands eftir stutta dvöl sama saga og með bróður hans í fyrra.

Jónu Finndísi hefur verið boðið styrkur til Doktorsnáms, sem hún hefur afþakkað í bili.

Ferðasaga Rakelar og Sigga er hérna á vefnum;

Siggi fór til Dallas, Denton og Forth Worth í vor, 2000 og hitti Kristínu, Einar Þór, Yuccu og Róbert prófessor.

Flestir Austin Kjammar fóru í Brunch seinsast sunnudag í Mars, 2000. Hittutst þá Jón Birgir og hinir í fyrsta skipti.

Velkomin til Austin og í samfélag kjammana Brigitta og Kristín. (sjá meðlima síðu). Brigitta sem er fæddur Húnvetningur (eins og Rakel og Jóna Finndís) er flutt til Austin ásamt Steve. Hyggst hún vinna í ár í Austin og fara síðar í UT. Kristín er dóttir Mæju í Dallas þar sem þorrablótið var haldið seinast, en hún er að byrja í UT.

Starri bróðir Rakelar mætti á svæðið og fékk að njóta leiðsagnar vanra manna við skoðun á næturlífi Ástínborgar, en Rakel og Siggi leiddu saklausan sveitardrenginn í allan sannleika um hættur stórborgarinnar. Tekið skal fram að Starri stendur yngri bræðrum sínum lítt að baki er hlaup varðar og mun ótrauður kasta sér út í harðvítuga keppni við Sigurð nokkurn Magnússon í vikulegu hlaupi þeirra Ástínbúa.

Fyrri afrek Starra á hlaupasviðinu má nálgast á netinu.

Sigfús lauk MBA náminu við UT sem skiptinemi í Finnlandi. Hann og Birna yfirgáfu Austin fyrir fullt og allt rétt fyrir jól 1999.

Móðir Birnu kom í heimsókn í um það bil viku haustið 1999. Hún kom með Íslenskt veður með sér, en sem betur fer fékk hún smá Texas sól áður en hún hvarf aftur heim.

Vignir Stefánsson júdókappi sem var í Collage Station Kappinn keppti þar einn góðan veðurdag, en því miður dróst mótið svo mjög á langinn að fréttaritarinn hafði ekki samvisku til að bíða allt til enda (skólabækurnar heilluðu - þið skiljið). En alla vega, Vignir var búinn að leggja alla þegar ég fór (fór létt með) og á góðri leið til sigurs í sínum flokki. Þetta var opið mót, allir Texar sem vildu gátu keppt. Sumir hefðu betur ekki keppt, mé sýndist einn fara úr axlarlið, annar tognaði illa á ökkla og sá þriðji meiddist illa á hálsi og var borinn út í sjúkrabíl (eins og hinir tveir), nema hann var skorðaður á strekk. Okkar maður slapp þó við slík meiðsli (meðan ég sá til alla vega).

Vignir er búinn að keppa á tveimur stórum mótum, fyrst á móti í Louisiana og síðan á mjög sterku móti í Boston, þar vann hann allar glímur á ippon. Framundan hjá honum eru núna mót um hverja helgi, sum ansi öflug, t.d. US open. Blöðin hafa verið dugleg við að segja frá honum, t.d. er hér frétt á VISIR.IS.

Sveinn bróðir Rakel er kom til Arkansas 1998 í nám og hlaup fór aftur til Íslands eftir stutta dvöl sama saga og með bróður hans 1999.

Sigfús með Birnu á bakinu
Birna og Sigfús fóru í bíltúr í byrjun sumars til Florida með viðkomu í Nýju Orleans og helgarferð til Houston.

Jóna Finndís fór í sumarfríi á Íslandi og kom til baka 17 júní. Svo fór hún í vinnuferð til Kaliforníu í lok júlí.

Sonia og Stefán eignuðust strák miðvikudaginn 31. mars, hann var skírður laugardaginn, 8 maí.

Mamma og bræður Rakelar komu í heimsókn til Austin í vor.

Í College Station

Northerners by south by southwest. Hátíðahöld í Austin, Spring Break 1999. Pártý var haldið hjá Sigfúsi og Birnu föstudagskvöld. Anna Lára, Birgir, Róbert Professor og flestir Austin kjammar mættu. Á eftir fóru margir að dansa og ekki skorti dans maka. Daginn eftir var farið í brunch, og að skoða pípuorgel (hús) Sigga, Rakelar og eiginlega Jóns. Svo í Körfubolta, sér í lagi þeir sem drukku ekki romið hans jóns.

Kristín og vinkonurnar Yuka og Shoko komu í heimsókn til Austin frá Denton. Farið var til San Antonio og haldið uppá afmæli.

Íslenska hljómsveitin Bellatrix öðru nafni Kolrassa Krókríðandi, spilaði laugardaginn 20 mars á Bob Popular, sjötta stræti Austin.

Guðrún Ásgeirsdóttir prestfrú sem kom í heimsókn til Austin er komin með vefsíðu.

Haustið 1997 var farið í útilegu í Enchanted Rock. Ferðasögu ritaði Stefán.