1.

2.
3.

Icesave og hrun Íslensku bankana hefur verið mál málana núna haustið 2008.

Gamlir kjammar og Íslendingar búsettir erlendis, sendið okkur tölvupóst ef þið viljið koma efni um ykkur á framfæri.

Stebbi ætlar þú að koma heim til landsins eða ekki? Nú er ódýrara að kaupa á Íslandi, þeir sem eiga gjaldeyrir fá langtum meira fyrir hann og gott fólk fær alltaf vinnu...


Jóna Finndís missti pabba sinn nýlega. Hún er komin til Íslands fyrir sumarið og vinnur við doktors námið sitt.

Rakel er í undirbúnings nefnd fyrir Idol söngkeppni í ráðhúsinu í kvöld 16 apríl 2004.

Hérna eru nokkrir linkar: Iceland Hotel. Arnfjörð. Iceland Lodge. Reykjavic. Iceland. Iceland Photos. Hotel Iceland. Golf. Íslenskir linkar. Bíll til sölu.

Sendið mér línu um hvað sé að frétta af ykkur.

Því miður höfum við ekki talið að skynsamlegt að úthalda lista yfir netföng meðlima vegna hættu á spam.

Sigrún í Tucsan Arizona hefur dvalið þar síðasta eitt og hálft ár ásamt dóttur sinni. Hún spyr hvort það séu einhverjir aðrir Íslendingar á því svæði. En Dr Anna sem nú er að kenna MBA nemum í Ástralíu bjó þar áður.

Elías býr í Denver Colorado. Hann er líka að spá í hvort það séu einhverjar Íslendingar á hans svæði. En Ása og Simmi bjuggu einmitt á því svæði áður.

Magnað innflutningsparty var haldið hjá Jónu Finndísi átjánda júlí. Núna er hún farinn aftur í skóla að þessu sinni í doktorsnám í Svíþjóð.

Jón, Gyða og fjölskyldu eru flutt frá Austin til Hattiesburg, Mississippi. Gyða er í Internshipi, Jón í feðraorlofi, Gréta í skólanum og Erik Oddur byrjaður að labba.

Hildur frá Suðurnesjunum sem var skiptinemi í Austin er komin með heimasíðu

Þröstur og Auður ásamt þremur dætrum þeirra eru flutt til Houston. Í Houston búa líka Fjóla og Hallgrímur.

Kjamma síðurnar eru nú aftur komnar í loftið eftir langt hlé. Öllum kjömmum fyrr og síðar er boðið að senda efni á vefinn. Íslendingar búsettir erlendis geta gerst meðlimir með því að senda tölvupóst. Kjammar halda áfram að vera Kjammar þó svo að þeir flytji til Íslands en um daginn 16 júní 2003, hittust heimfluttir Kjammar og Kjammar sem voru í heimsókn á Íslandi í party heima hjá Önnu Láru og Birgi í Mosfellsbænum.

Jóna Finndís flytur í nýja íbúð með fögru útsýni núna um helgina 12 júlí. Bjössi bróðir Rakelar er líka að flytja!...en flytur aftur á Efstasundið.

Gyða er að vinna að Doktorsritgerð sinni á Íslandi þessa dagana á meðan Jón vinnur hjá sínum fyrrum vinnuveitanda. Í haust flytja þau á nýjan stað í Bandaríkjunum.

Siggi og Rakel ætla í útileigu ferð 24 júlí.

Það er gaman að svo margir kíkja reglulega á þessar síður þrátt fyrir að vefurinn hafi verið niðri um tíma. Munið að opna aldrei viðhengi sem þið eruð ekki viss um hverslags efnis eru!!

Hérna er mynd af Brigittu og Guðrúnu Liv í Austin á afmælisdegi Brigittu um daginn.

Lóa sendir kveðjur frá Austin.

2002

Nú líður óðum að 17 júní, og okkur langar til að halda upp á það og afmæli Jons (31) um leið núna á laugardaginn, 8 júní. Við höfum bara picnic mat, ekki alveg ákveðið hvað enn, kl. 5, ef allir koma bara með eitthvað til að hafa með sjáum við um kjötið og afmælistertuna. Gott væri að heyra frá ykkur sem koma svo við vitum hvað margir og með hvað, síminn er 512-246-8688 eda bara senda email. Hlakka til ad sjá sem flesta hérna. Maja

Við óskum eftir sjálboðaliðum til að bæta við efni á kjammasíðurnar og þar með talið meðlimasíðuna. Það getur verið gagn og gaman fyrir þá sem koma að þessum ferli, en þetta þarf ekki að vera mikið mál. Einnig væri æskilegt að eiga samstarf við einhvern aðila sem er með eða gæti hugsað sér að vera með háhraða internet tengingu sér í lagi þar sem það er hagstætt eins og í Kaliforníu. Áhugasamir/samar sendið okkur tölvupóst.

Rakel og Siggi eru flutt til Íslands. Við viljum koma á framfæri kærum þökkum til allra kjammanna í Austin fyrir þá miklu og ómetanlegu hjálp sem þið veittuð okkur við (og eftir) flutningana. Við það tækifæri komu í ljós tröllslegir kraftar Jóns þegar hann hljóp með dótið úr bílskúrnum og henti þeim upp í gám. Gyða sýndi mikinn dugnað og mikla útsjónarsemi við að pakka inn hinum furðulegustu eigum Rakelar og Sigga. Stebbi sannaði sig sem fyrsta flokks gámaröðunarmaður og Sonia var hillu-innpökkunar sérfræðingur. Brigitta var hreinsisérfræðingur og eins Maja, sem reyndar vann á fjölmörgum sviðum (og öllum í einu). Hún var hreinlega eins og stormsveipur. Og Joe sem hafði yfirumsjón með gámaröðun sýndi einstaka snilli við uppröðun og verður lengi í minnum haft. Joe og Maja sátu svo uppi með okkur í viku eftir flutningana og var það yndislegur tími. Betri gestgjafa er vart hægt að hugsa sér. Lýkur nú þessari lofræðu hér með...

Verið dugleg að senda inn efni (texta og myndir) á kjammavefinn!

Þorrablót var haldið í Dallas nýlega.

Áramóta party var haldið í Austin heima hjá Stebba og Soniu.

Til hamingju með BS gráðuna Anna Ara og til hamingju með útskriftina Hófý.

Sífellt er verið að spurja okkur hvort við vitum til Íslendinga víðsvegar um Bandaríkin, vinsamlegast látið okkur vita ef þú/þið viljið vera í sambandi við aðra Íslendinga sem þið vitið ekki þegar af í ykkar nágrenni.

Siggi ætlar að skreppa til Íslands 9 jánúar.

Party var haldið heima hjá Sigga og Rakel, föstudaginn 14 desember, og jólaboð heima hjá Maju jóladag.

virðist einungis hægt að nálgást útvarps fréttaupptökur á Windows Media formi.  Er það miður því það virðist ekki vera hægt að setja á pásu, né spóla og hljómgæði eru verri heldur en þau voru í Real player.  Linkar fyrir gömlu real upptökurnar eru enn til staðar (að viðbættum Windows Media Linkum) ef ske kynni að þessar upptökur verða teknar í notkun á ný.  Vera má að windows media spilarinn þinn virki ekki, jafnvel þó þú sért með nýjustu útgáfur af Netscape, Internet Explorer og Windows Media Player.

Söga FM 94.3 er með íslenska jólatónlist!

Horfum á eða hlustum á Ríkíssjónvarpið, Alþingi, Hafnarfjörð, Vestmannaeyjar eða hlustum á Rás1, Rás 2, Bylgjuna, FM 95.7, Radío-X FM 90.9, Klassík FM 100.7, Sögu FM 94.3, eða Létt FM 96.7  í beinni.  Hér er San Fransisco Bay Bridge seinustu 12 tímana.

Hófí verður á ferðini um víða veröld á næsta ári, og Palli er búin að vera að halda fyrirlestra víðsvegar um Ísland.

Siggi er þessa dagana að leita að stjórnunar- og/eða tæknistöðu hvar sem er í heiminum.

Dr Róbert Magnússon áður í Arlington, Texas hefur tekið við stöðu prófessors og deildarstjóra verkfræði og tölvudeildar við Háskólann í Connecticut.  Til hamingju Róbert!

Rakel hefur lokið Internship við Center for Working Families við Berkely Kaliforníu háskóla og er hún nún komin aftur heim til Austin.

Hólmfríður hefur verið kjörin í 6 manna framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar, en 150 manns eru í boði.

Siggi og Rakel hafa sett húsið sitt á sölu.

Birna og Sigfús eiga von á barni í júní 2002.

Bjarkar myndband (linkur lagaður) á vefnum. Sigurrósar myndband á vefnum. 

Hér er (fyrir windows media player) mjög áhugaverður þáttur (sér í lagi fyrir foreldra) sem sýndur var á PBS og kallast á frummálinu "fat and happy".  (Vefsíða Walford hjá Calorie Restirction Society.)

Guðbjörg og Stefán í San Antonio eignuðust strák Skarphéðin Davíð (14 merkur og 52 cm) 18 október 2001.

Jón og Gyðu skruppu til Íslands í 10 til 14 daga í byrjun Nóvember og standsettu hús sem þau eiga.

Siggi skrapp í heimsókn til Kaliforníu tvisvar í haust.

Móðir Kristínar í Denton lenti í Slysi í Borgarfirði og axlarbrotnaði, sjá frétt morgunblaðsins.

Starri bróðir Rakelar og Bergþóra kona hans komu efri hæð hús síns fyrir.  Húsið er staðsett við Eyjafjörð með útsýni yfir til Akureyrar. 

Viðtal við Rakel og Stefán í morgunblaðinu vegna hörmungana á Austurströnd Bandaríkjana.

Nú eru bæði Hófí og Palli orðnir Doktorar.  Hófi hélt uppá sína gráðu í byrjun september.

Rakel og Siggi hafa sett inn myndir úr brúðkaupi þeirra.  Sjá brudkaup.vefur.com  

Nokkrir Kjammar fóru lautarferð í lok sumars og busluðu aðeins í Pedarnals ánni. 

Jóna Finndís var í kvöldfréttum sem talsmaður Orkustofnunar.  

Vírusum eða notkun á sérhönnuðum fylgiskjölum sem eru notuð til að brjótast inn í tölvur fjölgar.  Í sumum tilfellum er ef til vill um að ræða tölvuþrjóta sem skíla sér á bak við vírusa, en eru kanski í raun bara að reyna að brjótast inn í tölvur, ná sér í gögn, greiðslukortsnúmer og/eða skemma.  Sum fylgiskjöl virðast vera myndir en eru kanski .exe eða önnur forrit sem geta gert hvað sem er við tölvur ykkar.  Farið varlega!  Jafnvel skrár frá einhverjum sem þið þekkið geta innihaldið svona forrit, sem viðkomandi fékk annarstaðar frá og virtist kanski vera sniðugt.  Ef forrit er sérhannað til að brjótast inn eða eyðileggja, en hefur ekki verið dreift víða um netið er ekki ástæða til að halda að vírusvarnarforrit fynni það enda ekki um eiginlegan vírus að ræða, þó svo að það geti valdið jafn miklum eða meiri skaða fyrir þig.  

Brigitta og Stebbi skýrðu dóttur sína Guðrúnu Liv Arden í Þingeyrarkirkju í sumar.

Jón og Brigitta stunda nú nám af kappi við ACC í markaðsfræðum.  En Sverrir er að læra í South West Texas í San Marcos.

Eggjandi ilmur kvenna rannsakaður hjá UT.

Haldið var uppá 50 ára afmæli Dr Palla sumarið 2001 sem var líka nýútskrifaður.

Swissnensk stúlka sem var áður skiptinemi og gisti hjá Palla og Hófí á Íslandi heimsótti þau hingað til Austin, hún hefur líka verið í sveit heima hjá foreldrum Jóns og talar reibrennandi íslensku.

Siggi og Rakel giftu sig líka í sumar, eða 29 júní 2001 í Skagafirði.  Um hveitibrauðsdagana gengu þau með Jökulsá á Dal að Eyjabökkum.

Ólöf er Íslensk stúlka sem er settst hér að ásamt bandarískum eiginmanni og börnum þeirra í Colony, rétt fyrir utan Dalls.  Sjá meðlima síðu.

Allt gott er að frétta af Jón Finndísi.  En hún er að vinna hjá Orkustofnun eftir að hafa fengið topp einkun í meistara prófi í verkfræði við UT.

Rakel var í Austin í sumar fram yfir miðjan Ágúst.

Varúð. Passið ykkur á gylliboðum frá Qwest.  Þeir eru þessa dagana að bjóða 200 mínútur innanlands á eitt cent eða 120 mínútur til útlanda og þrjá mánuði án mánaðargjalds.  Það sem þeir klikka á er að segja að ókeypis mínúturnar eiga einungis við um fjórða mánuðin og að þetta tilboð eigi annaðhvort við innanlands eða utanlands míúturnar.  Við höfum líka heirt um að þjónustan hjá þeim sé mjög slök.

Höfum fengið í hendurnar forrit/töluvuorðabók ensk-íslenska íslenska-enska.  Ef einhver vill prófa þetta hafið samband við Sigga í Austin.  Sjá meðlima síðu.

Skip bróður Sigga (hann er skipstjóri á því) sökk við bryggju í Kína.  Búið er að ná því upp aftur, sjá mynd.

Annað Þorrablót var í Dallas 24 febrúar og annað í San Fransisco/Silicon Valley 17 mars..

Agnar arkitekt í Houston er að byggja þrefalt hús á hálfri lóð.

Hafið samband við Tótu í Corpus Cristi ef þið farið á ströndina.   Sjá meðlima síðu.

Ný upgötvaðir Íslendingar í San Antonio og Houston. Agnar Þór Nielsen er í Houston og Arnór Baldvinsson er í San Antonio. Sjá meðlima síðu.

Stebbi og Sonia er komin í nýja vinnu, hjá sama atvinnurekanda. 

Kíkjið heim til Íslands núna á lifandi.vefnum.com.

Sjonnsi tekur sviðið. Sjá Sjonnsa.vefinn.com.

Siggi hefur búið til vef með myndum sem hann tók um um seinustu áramót heima hjá systur hans við Skagasel. Sjá Skagasels.vefur.com.

Enn einn Jón Rafvirki í Texas, er búsettur ásamt konu sinni og dóttur í Dallas. Sjá meðlima síðu.

Sigfús hefur verið ráðinn fjármálastjóri flugþjónustu Flugleiða á Keflavíkurflugvelli.

Jóna Finndís hefur fengið vinnu hjá Orkustofnun sem fagstjóri frá og með 1 nóvember. Hún mun leigja í miðbæ Reykjavíkur. Hún er búin að kaupa sér Subaro með aldrifi og ætli hún sé ekki bara alsæl, nema hún saknar náttúrulega Austin dálítíð.

Corley sem býr í Towlett, nálægt Dallas hafði samband. Hann/hún (get ekki greint hvers kyns nafnið er) hefur áhuga á að vera í sambandi við Íslendinga enda hefur ferðast oft til Íslands, skilur, skrifar og jafnvel talar íslensku. Netfangið Corley er á meðlima síðunni.

Valkyrjur er spjallhópur fyrir íslenskar mæður sem búa erlendis. Með því að senda póst á ákveðið netfang, sjá meðlimir, fá allir félagar póstinn. Þannig geta þær spjallað sman um það sem liggur á hjarta, börnin , lífið í útlandinu eða hvað annað sem þeim dettur í hug. Sjá efst á meðlimasíðu.

Verið er að spá í útileiguferð.

Brigitta og Steve eignuðust stóra (10 pund, 54.5 centimetra) stelpu Liv Arden Cannon, miðvikudaginn 13 september 200 klukkan 10:08. Fæðingin gekk vel og heilast öllum vel. 

Jóhann og Berglind eru komin aftur til College Station haustið 2000.

 

Sverrir og fjölskylda eru flutt aftur til Austin eftir að hafa búið víða í Bandaríkjunum. Sverrir er að teppa-, parketleggja og mála húsið þeirra sem er í sömu götu og hús Stefáns og Soniu.

Jóna Finndís er komin til Íslands með 4.0 (top einkun) meistaragráðu í farartaskinu. Áður en hún fór heim ferðaðist hún um Bandaríkin, fór meðal annars til Alaska og heimsótti Rakel í Berkeley.

Nýjir Íslendingar eru mætt á svæðið, þau heita Íris (sem er að fara í samskonar nám og Kristín og Einar Þór í Denton) og Hreinn sem er að fara í MBA nám í Arlington. Svo höfum við frétt af henni Fjólu sem er búin að vera í Denton í 30 ár.

Foreldrar Jónu Finndísar og ein systir hennar hún Fríða heimsóttu hana í tilefni útskriftar hennar.

Gréta, Jón og Gyða eru komin aftur til Austin og flutt inní Gateway háskólaíbúð í sömu byggingu og Rakel og Siggi bjuggu áður svo og þau sjálf í skamman tíma. Gréta hefur stækkað mikið. Jón hefur hafið markaðsnám við ACC, en Gyða heldur áfram í Doctorsnámi í Sálfræði við UT.

Rakel fór og hélt fyrirlestur á Apa ráðstefnu í Washington DC í byrjun ágúst.. (Apa = American Psychological Association)

Búið er að endurraða og bæta við upplýsingum á meðlima síðuna. Vinsamlegast sendið leiðréttingar og upplýsingar um íslendinga sem staddir eru í Bandaríkjunm til sm@rvik.com.

Anna og Árni eru komin aftur heim til sín í Brekkukot, Texas, ásamt þremur barnabörnum. Anna skrapp svo með þau heim til Íslands 18 júlí og stoppaði í 10 daga.

Ása (sjá mynd til hægri) er búin að vera í námi í Colorado fylki. Rakel gisti hjá henni á meðan hún stundaði doctors rannsóknir í Coloroado.

Sautjánda Júni fagnaður var haldinn í nýja heimili Mæju í Austin, 2000.  Róbert lagði mikið á sig og keyrði fram og til baka. Einar Þór sem stundar nám í Denton, Linda frá San Antonio og Þórdís sem gistir hjá henni, svo og kærasta Jón Birgis létu sjá sig í stórum kjamma hóp í fyrsta skipti.

Brigitta og Stebbi er flutt inní nýtt og glæsilegt einbýlishús.

Stebbi og Sonia keyptu sér Hondu jeppa. Þó fóru í ferðalag til Colorado fylkis nýlega.

Guðbjörg er að hefja viðbótar nám í læknisfræðum og Stefán er í doktorsnámi í San Antonio.

Kristinn sem var að læra MBA nám í Rice í Houston er nú tekinn við stjórnunarstöðu fyrir Java Software hjá Sun Microsystems í Silicon Valley.

Jóna Finndís heimsótti Kopargljúfur í Mexicó í júni. Hérna er myndskreitt ferðasaga.

Heiða, maðurinn hennar Micah og dæturnar Steinunn og Samantha (sjá mynd til vinstri) búa í Nacogdoches (austur Texas).  

Steinunn sem hefur verið í Houston ásamt manni sínum Antoni, er búin að vera í Frankfurt og Anton við herskyldu í Grikklandi. Þau flytja aftur til Houston í haust 2000.

Simmi og Jói keyptu sitthvort húsið á Austin svæðinu á síðasta ári. Simmi í Cedar Park og Jói í sama hverfi og Siggi, Rakel, Brigitta og Steve keyptu sín.

Verið er að spá í útilegu ferð í haust.

Jóhann og Berglind (sjá mynd til hægri) eru að vinna á Íslandi í sumar. Þau koma aftur til College Station í haust.

Kristín Nipper ól barn í Maí. Bróðir hennar Jói (Joe) eignaðist sitt annað barn, strák 11 april. Móðir þeirra Mæja er flutt til Austin.  

Víkingahátið var haldin í Georgetown 29-30 Apríl 2000.  

Sigfús hefur fengið vinnu sem ráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers á Íslandi. Birna stefnir á Kennaraháskólann eða Uppeldisfræðina í Háskóla Íslands.

Kjammarnir færa út kvíarnar. Öllum Íslendingum sem eru búsettir eða á leiðinni til Norður Ameríku er hér með boðið að skrá sig og tilkynna fréttir fyrir sínar "íslendingabyggðir". Sendið tölvupóst til sm@rvik.com.

Fjóla Björk lýkur námi sínu á Ítalíu í lok júlí. Skólafélagi hennar setti myndir á vefinn.

Fjóla Björk kom til Austin áður en hún hvarf frá Bandaríkjunum til að halda áfram MBA námi sínu á Ítalíu. Jóna Fnndís sýndi henni borgina og flesta Austin kjamma.  

Vinkona Brigittu kom í heimsókn í sumar, 2000. 

Sigfús hefur lokið MBA náminu hjá UT. En seinasta áfangann tók hann í Finnlandi.

Siggi og Rakel eru komin með grind á bílinn sinn fyrir allt að fjögur reiðhjól, þannig að ef einhver er í hjóla stuði hafi sá sami samband við annðhvort þeirra. Skemtilegar hjóla og göngu leiðir eru í næsta nágrenni við þau, einnig er hægt að keyra út í sveit, t.d. til Pedarnels eða Bastrop.

Fjallað er um Ísland, vatn og fegurð í Mars-hefti Vogue, 2000. Siggi og Rakel eiga eintak.

Nýr Íslendingur í Denton heitir Einar Þór, hann stundar þar sálfræðinám eins og Kristín.

Fjölskylda bróðurs Sigga er með heimasíðu á vefnum tengdum myndum sem Siggi tók og setti saman á vefinn.

Hér efst á síðunni til hægri má sjá hvernig um er að litast í Reykjavík nákvæmlega núna. Ef þú klikkar á borgirnar getur þú séð mynd frá Austin í beinni. Til að sjá myndir af Reykjavík, Austin, Texas ströndinni, jarðskjálftum á Íslandi og af eldfjalli í Mexico klikkaðu hérna.

Ef þú notar Internet Explorer er sérlega þægilegt að nota 1, 2 og 3 valkerfið hér fyrir ofan til að velja fréttir eða aðrar útsendingar.

Fyrir þá sem hafa ekki tekið eftir því, sér í lagi Birna og Sigfús, prófið að færa örina/hendina yfir Heklu hér neðarlega á síðunni og kíkjið á myndina af Sigfúsi og Birnu á sama tíma.

Party
Plan Sigga
Komur og brottfarir
Eldri fréttir
Tölvumál
Símamál
Senda skjal eða mynd á kjammavefinn
Login á rvik.com

Birgir og Anna Lára eignuðust dóttur mánudagsmorgun, 29 nóvember 1999, kl. 8:59 fyrir hádegi að staðartíma (1:59 eftir hádegi íslenskum tíma, Austin tíma 7:59 fyrir hádegi). Anna Lára og dóttir eru við góða heilsu. Dóttirinn vóg 17.5 mekur (4370g) og var 55 cm long. Sjá nýjustu myndir á vefsíðu 

Jóna Finndís fór til Gutamala og Belize í byrjun janúar. Hún var ekki var við eldgos sem geysaði um þetta leiti og sagt var frá í íslenska ríkisútvarpinu en mun hafa skemmt sér vel. Hákarl sem hún sparkaði í ákvað að gæða sér ekki á henni þó svo hún virtist vera að drukna.

Jóna Finndís hefur ákveðið að halda ekki áfram í UT og næla sér ekki í Doktosgráðu í Vatns og umhverfisverkfræði. Verður það mikill missir fyrir Austin búa og fræðigreinina.;(

Bush í rusli. Ekki vegna þess að hann mundi ekki nöfn erlendra þjóðhöfðingja heldur sjá frétt Morgunblaðsins.

Ágústa sem býr í Houston, var að vinna í Austin í nokkra daga haustið 1999. Af því tilefni hittumst hún og Austinkjammarnir á veitingastað.

Ódýr símtöl til Íslands og annarsstaðar í gegnum Five line 10-10-811, þjónustunúmerið er 1-800-544-1510 til að fá nánari upplýsingar. Samkvæmt þeim þá kostar mínutan til íslands 19 sent, til Englands 10 sent, alls staðar innan Bandaríkjanna kostar 5 sent hvenær sem er sólarhringsins. Rukkað er minnst fyrir eina mínótu og í heilum mínótum eftir það til útlanda, en minnst fyrir 10 mínótur innan Bandaríkjana. Þessir taxtar gilda allan sólarhringin, alla daga. Nokkur okkar hafa hringt og athugað þetta og virðist þetta allt standa. Ef þið komist að einhverju öðru látið okkur vita. Til að hringja til Íslands hringið í 10-10-811-011-354+númerið. Upplýsingar um önnur ódýr símtöl til Íslands, (Gyða er umboðsmaður). Sjá "erlenda miðla" síðu.

Hvernig væri nú að senda inn efni til birtingar hér á kjammasíðunum. Eftir að þú hefur skrifað grein í texta, Word, WordPerfect eða HTML formi skalltu bara klikka hér. 

ÞjórsáNýtt um plan Sigga í dag og næstu daga.

Ferðasaga Rakelar og Sigga er hérna á vefnum;

Heiðmar pabbi Rakelar er komin með heimasíðu sem Siggi bjó til, (Siggi tók líka svart-hvítu myndirnar). Þau reka ullarverslunina Þingborg sem Siggi bjó til vefsíðu fyrir líka.

Upplýsingar um baekur sem Siggi ( og Rakel ) eiga og hægt er að fá lánaðar, sumar eru gagnlegar fyrir MBA nám. (Enn er verið að setja inn bækur)

Ódýr símtöl til Íslands, (Gyða er umboðsmaður). Sjá "erlenda miðla" síðu.

Allra ódýrustu símtölin eru nú um 16 cent á mínótu. Fylgist með nýjum tilboðum. Leiðrétting - Það símtöl til Íslands hjá MCI-Worldcom eru enþá rándýr.

Þessa síðu er að finna undir kjamma.vefur.com, kjammar.in-cyberspace.com, kjammar.on-the-world-wide-web.com og á kjammar.rvik.com með eða án www fyrir framan.

Efst á síðu
Líkamsrækt

Meðlimir
Íslenskir miðlar
Erlendir miðlar
Borgirnar
Rvik.com

.