Áramót 1998/9 Kópavogur
Ægisíða, Seltjarnarnes

K j a m m a    P a r t y

Íslendingaboð var haldið hjá Tótu Kelly í Corpus Christi helgina 23-25 júní.

Party var haldið heima hjá Sigga og Rakel 3 Júní. Gaman var að hitta Guðbjörgu (sem er nú að hefja viðbótar nám í læknisfræðum) og Stefán sem er í doktorsnámi í San Antonio.

Hvernig væri nú að senda partýlýsingu til birtingar hér á kjammasíðunum. Eftir að þú hefur skrifað grein í texta, Word, WordPerfect eða HTML formi skalltu bara klikka hér. Sendu líka tölvupóst til Sigga þessu til staðfestingar.

Stemmning í Austin. Vorið 2000 var South by Southwest tónlistar viðburður með meiru. Seinustu þrjú ár hafa íslenskar hljómsveitir troðið upp (margir töldu þó Gus Gus ekki vera hljómsveit). Um sama leiti var haldið Ródeó sem nokkrir kjammar fóru á.

Móðir Sigga og Gyða vinkona hennar komu til Austin í Maí, 2000.  Buðu Siggi og Rakel kjömmunum tvívegis í mat af því tilefni.  Mamma hans Sigga útbújó fisk og kalkún í hitt skiptið.

Kjammarnir hittust í Austin laugardagskvöldið fyrir páskadag, langt að voru komin Anna og Árni (frá Dallas) og strákur frá Akureyri sem er skiptinemi í Minnesota svo og Sverrir, foreldrar hans og frú.

Þorrablót var haldið laugardaginn 29 janúar 2000 í Mesquite, Dallas, Texas í seinasta skipti í gömlu húsakynnum Mæju, þar sem þorrablótið var haldið seinast.

Í tilefni að Jón og Gyða fóru frá Austin haustið 1999 og að Jóna Finndís tók á móti gesti frá Orkustofnun var farið út að miðvikudagskvoldið áður en þau fóru.

Rakel og Siggi heldu smá boð fyrir þá fjölmörgu kjamma sem voru staddir á Íslandi fyrir jól. Gaman var að sjá Hannes og Soffíu aftur.

Rakel og Siggi eru flutt inní nýtt hús. Fjórða desember var haldið ærleg innflutnings veisla.

Þakkargjörðar veisla var haldin hjá Stefáni og Soniu haustið 1999. Siggi borðaði yfir sig og varð að fara snemma heim.

Meðleigjandi Jónu Finndísar, hún Katherine bauð vinum hennar hér í Austin í afmælisboð sunnudagskvöldið 7. nóvember 1999.

Klikkaðu á myndina til að sjá stærri myndBirna og Sigfús héldu boð einn föstudag í lok Ágúst í tilefni 25 ára afmælis Birnu og að Jón og Gyða eru í borg. Mikið fjör var þar á meðal í formi dans sem Sigfús stóð sig einna best í. Í viðbót við fasta gesti komu Mike og sunica, Jóhann og Berglind frá College Station og Oddur og konan hans frá Dallas.

Jón og Gyða heldu pulsuparty á meðan þau voru í Austin, eiginlega var þetta eilíft party á meðan þau voru hérna.

Haldið var samkvæmi í tilefni af afmæli Rakelar, laugardaginn 14 ágúst. Það var mikið stuð.

REM tónleikar voru í Retama Park, San Antonio þriðjudaginn 17 ágúst. Birna, Sigfús og Jóna Finndís fóru.

Haldið var uppá Verslunarmannahelgina, í Rattan Creek hverfissundlaug og í Þórsmerkur tjaldi og í húsi Stefáns og Soniu. Frábærlega grillaður kjúklingur og borgarar voru í boði. 

Fyrir nokkru voru haldnir 17. júní leikarnir og grillveisla hjá Stefáni. Vel tókst til eins og venja er.

Seinustu helgi komu Kristinn og Anthony sem er giftur íslenskri stúlku í heimsókn til Austin. Af því tilefni var farið út að borða á Friday´s á Radisson hótelinu við Town Lake. Var þar svo mikið spjallað að það gleymdist að líta upp og kíkja á milljónir leðurblaka sem fara út á veiðar við sólsetur. Að því loknu fóru þeir og Rakel, Siggi og Birna á rölt um sjötta strætið. Svo klukkan tvö fóru Birna og Rakel heim en strákarnir héldu áfram að skemmta sér með því að fara á Polyester diskótek þangað til að lokaði klukkan fjögur um nóttina.

 

Í College Station

Northerners by south by southwest. Hátíðahöld í Austin, Spring Break 1999. Pártý var haldið hjá Sigfúsi og Birnu föstudagskvöld. Anna Lára, Birgir, Róbert Professor og flestir Austin kjammar mættu. Á eftir fóru margir að dansa og ekki skorti dans maka. Daginn eftir var farið í brunch, og að skoða pípuorgel (hús) Sigga, Rakelar og eiginlega Jóns. Svo í Körfubolta, sér í lagi þeir sem drukku ekki romið hans jóns.

Kristín og vinkonurnar Yuka og Shoko komu í heimsókn til Austin frá Denton. Farið var til San Antonio og haldið uppá afmæli.

Íslenska hljómsveitin Bellatrix öðru nafni Kolrassa Krókríðandi, spilaði laugardaginn 20 mars á Bob Popular, sjötta stræti Austin.

Celine Dion var í San Antonio sunnudaginn 4 Apríl. Gyða, Birna, Siggi, Rakel, mamma hennar og tveir bræður sem eru í heimsókn fóru.

Þorrablót var haldið fyrstu helgina í febrúar í Dallas. Mikið fjör og söngur.

Hver svæfir hvern?

Haustið 1997 var farið í útilegu í Enchanted Rock. Ferðasögu ritaði Stefán.

Rakel og Sigga hafa lengið verið að planleggja húsakaup. Eru þau með ákveðið hús í huga sem er að verða tilbúið.

Til að senda tölvupóst til allra kjamma er hægt að senda á netfangið kjammar@rvik.com

Til að senda tölvupóst til allra kjamma í Asutin er hægt að senda á netfangið austinkjammar@rvik.com

Nánari upplýsingar um netföng og símanúmer er að finna á meðlimasíðu kjamma.